Bhagavad Gita

Bhagavad Gita lýsir ferðalagi sálarinnar. Þegar textarnir eru skoðaðir í þessu forna og merka riti opnast upp heimur andlegra lögmála sem dásamlegt er að uppgötva og setja í samhengi við daglegt líf okkar.

 

Bhagavad Gita er mörg þúsund ára gamalt rit sem skrifað er í fjórum lögum skilnings. Með því að rannsaka það opnast faldir leyndardómar mannssálarinnar upp fyrir okkur.

Námskeiðið inniheldur heimspekifyrirlestra, hugleiðslu, öndunaræfingar og margskonar heimaverkefni.

Þetta námskeið er kennt í lotum, eitt kvöld í viku og þróast í samræmi við hæfni hópsins til að skilja dýpri lög fræðanna.

Sjá stað og stund undir „Næstu námskeið“  þegar ný lota hefst.