Jógakennaranám II · hefst 31. ágúst 2020

Jógakennaranám II, 560 tíma

Jógakennaranám II – 560 tímar er ætlað að dýpka þekkingu kennara sem hafa þegar öðlast reynslu af jógakennslu.

Námið er 4 lotur alls sem dreifast á um 10 mánuði. Hver lota er 5 – 7 dagar út í sveit.

  • Lota 1 hefst 31. ágúst og lýkur 6. september 2020
  • Lota 2 hefst 3. nóvember og lýkur 8. nóvember 2020
  • Lota 3 fer fram 23. febrúar og lýkur 28. febrúar 2021
  • Lota 4 fer fram 11. maí til 16. maí 2021

Gist er í Ashutosh Ashrami Dalbrekku í fjögurramanna smáhýsum. Nánari upplýsingar verða sendar út eftir skráningu.

Kennarar er Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir og Acharya Sri Swami Ashutosh Muni

Um námið

Hinir fornu textar Sanatan Dharma eru stúderaðir í þessu námi, Yoga Sutrur Patanjalis, Bhagawat Gita og Narada Bhakti Sútrur svo eitthvað sé nefnt. Það er farið ýtarlega í jógaheimspekina um leið og nemandinn leitast við að gera hana að hluta að sínu daglega lífi. Farið er dýpra í kennslufræði og kennslutækni varðand jógastöður, öndun, hugleiðslu og jóga-þerapíu. Þá er kafað dýpra í orkustöðvar og unnið með þær. Atomía líkama og orkulíkama er skoðuð dýpra, nauðsynleg element daglegrar jógaástundunar og andlegrar leiðar svo eitthvað sé nefnt.

Í lok námsins fær neminn diplómu sem staðfestir það sem hann hefur lært og ástundað í náminu. Nemandi fær möguleika á að ganga í Yoga Alliance Professionals.

Umsóknir og fyrirspurnir semdist á kristbjorg@kristbjorg.is

Facebooktwitterlinkedintumblrmail

Comments are closed.