Jógakennaranám II, 560 tíma
Jógakennaranám II – 560 tímar er ætlað að dýpka þekkingu kennara sem hafa þegar öðlast reynslu af jógakennslu.
Námið er 4 lotur alls sem dreifast á um 10 mánuði. Hver lota er 5 – 7 dagar út í sveit.
- Lota 1 hefst 31. ágúst og lýkur 6. september 2020
- Lota 2 hefst 3. nóvember og lýkur 8. nóvember 2020
- Lota 3 fer fram 23. febrúar og lýkur 28. febrúar 2021
- Lota 4 fer fram 11. maí til 16. maí 2021
Gist er í Ashutosh Ashrami Dalbrekku í fjögurramanna smáhýsum. Nánari upplýsingar verða sendar út eftir skráningu.
Kennarar er Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir og Acharya Sri Swami Ashutosh Muni
Um námið
Hinir fornu textar Sanatan Dharma eru stúderaðir í þessu námi, Yoga Sutrur Patanjalis, Bhagawat Gita og Narada Bhakti Sútrur svo eitthvað sé nefnt. Það er farið ýtarlega í jógaheimspekina um leið og nemandinn leitast við að gera hana að hluta að sínu daglega lífi. Farið er dýpra í kennslufræði og kennslutækni varðand jógastöður, öndun, hugleiðslu og jóga-þerapíu. Þá er kafað dýpra í orkustöðvar og unnið með þær. Atomía líkama og orkulíkama er skoðuð dýpra, nauðsynleg element daglegrar jógaástundunar og andlegrar leiðar svo eitthvað sé nefnt.
Í lok námsins fær neminn diplómu sem staðfestir það sem hann hefur lært og ástundað í náminu. Nemandi fær möguleika á að ganga í Yoga Alliance Professionals.
Umsóknir og fyrirspurnir semdist á kristbjorg@kristbjorg.is