Jógakennaranám I, 240 tímar
Yndislegur tími jógaástundunar, með lærdómi í jógískum fræðum og djúpri innri vinnu, hugleiðslu, prönu-öndun, dans og slökun í faðmi náttúrunnar.
Í náminu er einnig fólgin sjálfsvinna, heimavinna, þagnarstundir, útivera og satsang.
Námið er fyrir byrjendur
Kennari Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir
Námið hefst með 7 daga lotu uppí sveit 5. – 12. október.
Kennsluþjálfun og áframhaldandi nám fer fram að útskrift :
- Mánudaga og miðvikudaga kl. 6.00 – 7.30, í fjarkennslu
- Fimmtudaga 17.30 – 19.00 – kennslufræði, í fjarkennslu
- Fyrirkomulag fjarkennslu verður annað í hluta nóvember/desember þar sem Kristbjörg verður í USA. Þá verður kennt á laugardögum, tímasetning kemur síðar
Lota tvö fer fram 24. – 26. október
Lota þrjú fer fram 23. – 25. janúar
Útskrift 1. febrúar 2026
Frekari upplýsingar um námið: https://kristbjorg.is/namid/jogakennaranam/i-240-timar/
Sækja um: https://kristbjorg.is/namid/jogakennaranam/i-240-timar/umsoknareydublad/
Spurningar um námið sendist á info@kristbjorg.is