Yndislegur tími jógaástundunar, með lærdómi í jógískum fræðum og djúpri innri vinnu, hugleiðslu, prönu-öndun, dans og slökun í faðmi Sólheima.
Í náminu er einnig fólgin sjálfsvinna, heimavinna, þagnarstundir, útivera og satsang.
Námið hefst með 9 dögum að Sólheimum í Grímsnesi 16. – 25. mars 2018. Síðari lota fer fram 8. – 13. maí. Að auki fer fram kennsluþjálfun og áframhaldandi nám í Reykjavík (möguleiki á að nota skype) fram að útskrift.
Námið er fyrir byrjendur.
Kennari Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir
Lesið um námið hér.
Fyrir frekari upplýsingar sendið skilaboð til Kristbjargar hér.