Heimajóga með Kristbjörgu~Umu · vorönn 2022

Morgunjóga í fjarkennslu mánudaga & miðvikudaga 6.00 – 7.30

Allir eru velkomnir í morgunjóga með Kristbjörgu~Umu þar sem við eflum okkur, styrkjum og hlúum að sál og líkama hvert og eitt heima í stofu. Það er tilvalið að fá alla fjölskylduna með í jóga og skapa þannig bjartsýni, gleði, frið og einingu inn í daginn.

Kennt er mánudags- og miðvikudagsmorgnum kl 06:00 til 7:30. Kennt verður 31. janúar – 2. mars og aftur frá 25. apríl og fram eftir vori.

Ekki er tekin greiðsla fyrir kennsluna en tekið er við frjálsum framlögum sem renna til uppbyggingar Ashutosh Ashram í Hvalfjarðarsveit.

Kennslan byggir á Ashutosh jóga sem er hið Konunglega jóga, tímarnir samanstanda af hugleiðslu, léttum jógastöðum, öndun, yömum og slökun í lokin.

Kennslan fer fram í gegnum zoom og við skráningu fær nemandinn sendan hlekk  til að komast inn í tímana.

Skráning hjá kristbjorg@kristbjorg.is

*Ashutosh jóga byggir á kennslu jógameistarans Sri Swami Ashutosh Muni

Facebooktwitterlinkedintumblrmail

Comments are closed.