Þerapistanám I hefst helgina 1. – 3. október 2021
Lærðu að nota íslenska blómadropa til að skapa jafnvægi og blessun í lífi okkar, fjölskyldna okkar og skjólstæðinga.
- Kennd verður meðhöndlun á 45 tegundum blómadropa af íslenskum jurtum
- Kennt verður um kraft og eiginleika hverrar jurtar fyrir sig
- Kenndar verða fjölmargar leiðir til að vinna með blómadropa
- Kennt verður um notkun og blöndun jurta fyrir mismunandi ástand og aðstæður
- Kennt verður um orku-anatomíu jurta og manns
- Farið verður ítarlega í samband orku líkama okkar, tilfinninga, huga og blómadr
Tímasetningar fyrri lotu 1. – 3. okt eru:
Föstudag 17.00 – 21.00
Laugardag 09.00 – 17.00
Sunnudag 09.00 – 15.00
Áframhaldandi kennsla fer fram á mánudagskvöldum í október í gegnum zoom.
Seinni helgarlotan fer fram í lok nóvember í Dalbrekku ashrami, í lotunni verður gist á staðnum frá föstudegi til sunnudags.
Útskrift er áætluð í janúar 2022.
Innifalið í námskeiðsgjöldum er sett af 44 blómadropum, grænmetisfæði báðar kennslu helgar og gistingu síðari helgina.
Námskeiðsgjöld eru 248.000 kr.
Kennari er Kristbjörg Kristmundsdóttir
Skráning og nánari upplýsingar á kristbjorg@kristbjorg.is
Við útskrift fær nemandinn diplómu frá Jóga & Blómadropaskóla Kristbjargar sem staðfestir að hann hafi lokið Þerapistanámi I.