Blómadropaþerapistanám I
hefst helgina 12. – 14. maí 2023
Lærum að nota íslenska blómadropa til að skapa jafnvægi og blessun í lífi okkar, fjölskyldna okkar og skjólstæðinga.
Meðal efnis í náminu er:
- meðhöndlun á 45 tegundum blómadropa af íslenskum jurtum
- kraftur og eiginleikar hverrar jurtar fyrir sig
- fjölbreyttar leiðir til að vinna með blómadropa
- notkun og blöndun jurta fyrir mismunandi ástand og aðstæður
- orku-anatomía jurta og manns
- farið verður ítarlega í samband orkulíkama okkar, tilfinninga, huga og blómadropa
Nemendur fá einkatíma og handleiðslu hjá Kristbjörgu á meðan á náminu stendur
Lota I
12. – 14. maí
Kennt í Dalbrekku ashrami
Föstudag 17.00 – 21.00
Laugardag 09.00 – 17.00
Sunnudag 09.00 – 16.00
Áframhaldandi kennsla fer fram á þriðjudagskvöldum kl 18:00 – 19:30. Hægt verður að vera á zoomi fyrir þá sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu. Kennslufrí frá 28. júní til 28. ágúst.
Lota II
22. – 24. september
Kennt í Dalbrekku ashrami, í lotunni verður gist á staðnum frá föstudegi til sunnudags.
Útskrift er áætluð 28. október 2023.
Námskeiðsgjald er 395.000 kr. Greiða þarf staðfestingargjald við skráningu í námið.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er m.a. sett af 44 blómadropum, grænmetisfæði báðar kennslu helgar og gisting síðari helgina.
Kennari er Kristbjörg Kristmundsdóttir – Uma
Skráning og nánari upplýsingar á info@kristbjorg.is
Við útskrift fær nemandinn diplómu frá Jóga & Blómadropaskóla Kristbjargar sem staðfestir að viðkomandi hafi lokið Blómadropaþerapistanámi I