Jógakennaranám I, 240 tímar
Yndislegur tími jógaástundunar, með lærdómi í jógískum fræðum og djúpri innri vinnu, hugleiðslu, prönu-öndun, dans og slökun í faðmi náttúrunnar.
Í náminu er einnig fólgin sjálfsvinna, heimavinna, þagnarstundir, útivera og satsang.
Kennari Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir
- Námið hefst með 7 dögum í Dalbrekku Ashraminu 5. – 12. ágúst.
- Síðari lota fer fram 4. – 9. Janúar 2022.
- Að auki fer fram kennsluþjálfun og áframhaldandi nám í Reykjavík bæði í eigin persónu og á zoomi fram að útskrift nema í desember.
- Útskrift áætluð 11. janúar 2022.
- Námið er fyrir byrjendur.