Sælustundir og sálarró · Ashutosh jóga á Íslandi · 10 – 13 sept 2026

Dásamlegt tækifæri til að njóta hvíldar, iðkunar og endurheimtar í fjallafaðmi 
að Efra-Skarði í Hvalfjarðarsveit. 

Þátttakendur fá tækifæri til finna sælureitinn hið innra, næra líkama og sál með jóga, djúpslökun, kyrrð, hugleiðslu, útiveru, þagnarstund, jógaþerapíu, blómadropum, fræðslu og dásamlegu grænmetisfæði í anda Ayurveda sem eldað er á staðnum.

Markmiðið er að þátttakendur fari heim endurnærðir og úthvíldir með verkfæri til að hlúa betur að sér, dvelja í andartakinu og sínum innri kjarna.

Dagskrá frá kl. 7:00 – 20:30 með tækifæri til hvíldar og útiveru á milli stunda.

Mæting kl. 17:00 á fimmtudeginum og heimferð um kl. 16:00 á sunnudeginum. 

Gist er á staðnum, tveir saman í rými. Þátttakendur koma með eigin sængurfatnað og handklæði.

Verð 85.000kr.

Leiðbeinendur: Kristbjörg Kristmundsdóttir, Rakel Sigurðardóttir, Sigríður Lára Haraldsdóttir og Arnhildur Guðmundsdóttir ásamt öðrum Ashutosh jógakennurum. 

Skráning: info@kristbjorg.is

_________________________________________________________________________________________

Ashutosh jóga á Íslandi er lífsskoðunarfélag sem samanstendur af jógaiðkendum sem eru að byggja upp jógasamfélag að Efra-Skarði í Hvalfjarðarsveit.

Facebooktwitterlinkedintumblrmail

Comments are closed.